Auglýsingar

Coka Cola
Höldur
Norđurmjólk
Stefna ehf
Gámaţjónustan

Tilkynningar


 

Fylgist með LSA á Facebook

 

 Fylgist með okkur á Facebook

 ________________________________________________

 


Kæru foreldrar

Við hjá LSA vildum vekja athygli ykkar á árlegu sumaræfingabúðunum okkar sem haldnar eru í ágúst ár hvert. Þessar æfingabúðir eru fyrir alla keppnisiðkendur, fáum til okkar erlenda þjálfara og erlenda skautara og höfum líka ráðið sjúkraþjálfara og einkaþjálfara. Þetta árið fáum við aftur til okkar þjálfara frá Slóvakíu sem heitir Iveta Reitmayerova og á hún tvö börn sem bæði skauta og eru farin að keppa á heimsmeistaramótum og Ólympíuleikunum. Einnig tekur Iveta með sér að utan lítinn strák sem þykir mjög efnilegur. Æfingabúðirnar eru skipulagðar í 3 vikur samtals eða frá 9. - 27. ágúst (síðustu vikuna verða æfingarnar eftir skóla og með sama sniði og æfingar yfir veturinn).  Í boði verður á hverjum degi fyrstu 2 vikurnar 2 ístímar og 1 afístími sem og heitur/kaldur matur í hádegi og ávöxtur á milli æfinga. Skráning er búin að vera í gangi frá því í vor og það eru enn laus pláss í öllum hópunum. Heildarverðið er kr. 40.000 fyrir allt tímabilið með mat og ávöxtum.  Þjálfarar LSA mæta eindregið með því að þeir sem geta taki þátt, iðkendur læra svo mikið á þessum tíma og þetta er mjög góður undirbúningur fyrir næsta vetur og líka mjög gaman :)

Ef þið hafið áhuga á að skrá barnið ykkar í æfingabúðirnar endilega sendið tölvupóst á skautar@gmail.com og á ruthermanns@hive.is þar sem fram kemur fullt nafn barns og æfingaflokkur sl. vetur og kennitala, fullt nafn foreldra, símanúmer og heimilisfang. Ath. að það er hægt að nota ávísanirnar frá Akureyrarbæ til að borga fyrir námskeiðið. Staðfestingargjald er kr. 10.000 og verður innheimt um leið og skráning hefur borist. (Ef skráning berst eftir 14. júlí hjá iðkendum í C2 og upp úr eða eftir 24. júlí hjá C3 og C4 þá leggst kr. 5000 ofan á heildarverðið)

 

Nýjustu fréttir

  • Ćfingabúđir LSA 2010


    Drög að hópaskiptingum í sumaræfingabúðir LSA 2010 hafa verið birt í valmyndinni hér til vinstri undir "Sumaræfingabúðir 2010". Hópaskiptingarnar geta tekið breytingum næstu 2 vikurnar og einnig meðan á æfingabúðum stendur. Matseðill verður birtur á sömu síðu þegar nær dregur. Fylgist vel með þessari upplýsingasíðu!


  • PAPPÍR - ĆFINGABÚĐIR SA

    Jæja þá styttist í að skauta æfingabúðirnar byrji og þeir sem hafa áhuga á að selja pappír til fjáröflunar fyrir búðirnar geta haft samband.

    Allý - 8955804 / allyha@simnet.is


  • Byrjendanámskeiđ í ágúst

    Byrjendanámskeið á skautum fyrir börn fædd 2006 og fyrr verður haldið dagana 9.-13. ágúst kl:17:00-18:00 í Skautahöllinni á Akureyri. Á sama tíma verður haldið byrjenda námskeið fyrir unglinga og fullorðna. Verð kr. 5.000. Skráning og nánari upplýsingar; hildajana@gmail.com

     


  • Hóprinn lagđur af stađ til Ostrava

    Jæja þá er hópurinn lagður af stað til Tékklands. Mikil gleði og spenna var á Akureyrarflugvelli rétt fyrir klukkan átta í kvöld þegar hópurinn var að fara út í vél. Ferðalagið hjá skvíunum tekur sólarhring, þær verða eflaust uppgefnar þegar þær loks komast á leiðarenda. En mikið ævintýri og upplifun framundan hjá þeim. 


  • Ný prógröm / dansar

    Unnið er að nýjum prógrömmum / keppnisdönsum að öllu jöfnu í æfingabúðum í ágúst og fyrstu 2 vikum septembermánaðar. Það er í höndum iðkendanna sjálfra og foreldra þeirra að hafa samband við þjálfara (í gegnum tölvupóst) og fá upplýsingar varðandi næsta keppnistímabil; s.s. hvort að iðkandi þyrfi nýjan dans, finna tónlist og fá hana samþykkta hjá þjálfara og svo láta klippa tónlistina í viðeigandi lengd. Flestir iðkendur nota sama dansinn og sömu tónlistina í 1-2 ár og jafnvel lengur, þetta er alltaf matsatriði. Iðendur í 8 ára og yngri C og 10 ára og yngri C fá tónlistina sína hjá þjálfara enda að taka sín fyrstu skref í íþróttinni sem keppendur en ef einhverjar sérstakar óskir eru þá má hafa samband við þjálfarann. Mikilvægt er að iðkendur fái ný prógröm sem fyrst svo að uppbyggingartími fyrir fyrsta mótið sé sem lengstur. Ný prógröm eru a.m.k. 6-8 vikur að verða keppnishæf eftir að dans er tilbúinn!!

  • kleina

    Ég er komin heim og verð heima eitthvað í vikunni svo að þið getið sótt til mín kleinu peninginn ykkar

    kv. Allý


  • PAPPÍR OG KLEINUR

    Halló ég er að fara úr bænum á fimmtudaginn 10. júní og  vil ég byðja þá sem eiga eftir að skila til mín pappírs peningum að koma þeim til mín fyrir þann dag. Svo er ég með kleinu pening og vil endilega skila þeim af mér áður en ég fer, ég kem heim 18. júní..

    kv. Allý


  • Stjórnarskipti LSA, FLSA og ÍSS - enn vantar mótstjóra

    Ný stjórn LSA var kosin á dögunum og hana skipa áfram: Hilda Jana Gísladóttir, Rut Hermannsdóttir, Hólmfríður Egilsson, Guðlaug Reynisdóttir. Nýjir í stjórn eru: Inga Margrét Skúladóttir, Bergsveinn Kristinsson og Helga Sigurjónsdóttir.

    Í stjórn ÍSS voru m.a. kjörnar Sigríður Stefanía, áður mótstjóri LSA - í aðalstjórn og Kristín Þöll Þórsdóttir, fyrrv. gjaldkeri LSA í varastjórn.

    Foreldrafélag LSA hefur líka skipt um í brúnni og bætast þær upplýsingar vonandi við hér á síðunni innan skamms.

    Að auki eru líkur á að við fáum til starfa fulltrúa sem verður umsjónarmaður yngri flokka. En ennþá vantar okkur mótstjóra deildarinnar næsta vetur. Áhugasamir hafið samband við hildajana@gmail.com

     


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning