Lokahóf Ice Cup fór fram í gærkvöldi. Verðlaun afhent og krullumenn heiðraðir.
Lokahóf Ice Cup var vel sótt af krullufólki, en hófið fór fram á Greifanum eins og undanfarin ár. Á lokahófinu voru Davíð Valsson og Kristján Þorkelsson heiðraðir fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu krulludeildarinnar og krulluíþróttarinnar.
Þrjú efstu liðin á Ice Cup voru verðlaunuð, ásamt sigurvegurum í B-deildinni. Þá fengu stelpurnar í Íslenska draumnum smá glaðning sem sterkasta, fallegasta og best búna liðið. Konur í öðrum liðum fengu reyndar einnig smá glaðning ásamt þeim sem höfðu unnið í sjoppunni á mótinu. Árni Arason fékk síðan persónulegan glaðning sem besti varamaðurinn.
Þá var Mark Callan færð gjöf frá krulludeildinni fyrir frábært starf hans með okkur fyrir mótið og á mótinu.
Erlendu keppendurnir á mótinu voru allir á einu máli um að mótið hafi verið frábærlega vel heppnað og voru gríðarlega ánægðir með þær móttökur og þá gestrisni sem þeir fengu frá heimafólki.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.