Strákarnir okkar

Jæja. Sunnudaginn 8 okt. verður fyrsti leikur strákanna okkar í Evrópumótinu 2014.  Liði er skipað þeim Jóni Inga Sigurðssyni, Ólafi Númasyni og Sigurði Steindórssyni úr Mammútum, Skautafélagi Akureyrar. Með þeim eru einnig Andri Magnússon og Guðmundur Karl Ólafsson úr Krulludeild Bjarnarins. 

Leikurinn hefst kl. 8:00 ef maður er staddur í Hollandi og lítur á klukkuna ;-) og hægt er að fylgjast með leiknum (textaskor) á síðunni  http://www.curling2014.nl/?page_id=27

Allar upplýsingar um mótið eru svo á síðunni http://www.curling2014.nl/

Við óskum strákunum að sjálfsögðu góðs gengis.