Krulluæfing á laugardagskvöld

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (2013)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (2013)


Vegna eftirspurnar frá liðum sem mæta á Ice Cup eftir tvær vikur hefur verið ákveðið að laugardagskvöldið 19. apríl verði boðið upp á krulluæfingu.

Heflun ætti að hefjast um kl. 19.15 og svellið gæti því orðið klárt til krulluiðkunar um hálftíma síðar. Allir velkomnir, vanir og óvanir. Þetta er kjörið tækifæri fyrir krullufólk að taka með sér páskagestina og kynna íþróttina - og auðvitað í leiðinni góð æfing fyrir Ice Cup.