Íslandsmótið í krullu 2017

Víkingar halda áfram á sigurbraut en þeir sigruðu Ice Hunt í kvöld 9 - 3 en fjórða umferðin gerði útslagið í þeim leik þegar Víkingar náðu 5 steinum. Í hinum leiknum áttust við Freyjur og Garpar og var sá leikur í járnum fram á síðasta stein í framengingu. Eftir fimm umferðir voru Garpar með þriggja stiga forystu en Freyjur sýndu allar sínar bestu hliðar og skoruðu þrjú stig í sjöttu umferð og jöfnuðu leikinn þannig að auka umferð þurfti til að fá úrslit þar sem Garpar rétt mörðu sigur með einum stein í lokin. Staðan eftir fjórar umferðir:
Víkingar 4 stig
Garpar 3 stig 
Ice Hunt 1 stig 
Freyjur án stiga.