Íslandsmót 2018

Fyrsta umferð Íslandsmótsin fór fram mánudaginn 5. mars sl.  Ice Hunt og Víkingar áttust við í öðrum leiknum og Garpar og Riddarar í hinum. Ice Hunt vann Víkinga með tveimur stigum 7 – 5 en leikurinn á milli Garpa og Riddara var heldur ójafnari þar sem Riddarar skoruðu tvö stig í fyrstu umferð og síðan ekki söguna meir en Garpar unnu næstu sjö umferðir og leikinn 11 – 2 og hefndu þar með ófaranna frá fyrsta leik Gimli mótsins þar sem  Riddarar unnu Garpa 10 – 3.  Í næstu umferð spila Riddarar við Ice Hunt og Víkingar við Garpa.

Upplýsingar um mótið