Ice Cup 2017

Sigurvegarar Ice Cup 2017.
Sigurvegarar Ice Cup 2017.

Ice Cup 2017 fór fram dagana 4-6 maí s.l.  Alls tóku 18 lið þátt að þessu sinni með um 75 keppendur. Flestir keppendur komu frá Ameríku, en þaðan komu sex lið, en einnig komu lið frá Kanada og fleiri stöðum. Íslensku liðin voru sjö. Fólk af alls átta þjóðernum spilaði í þessum 18 liðum. Sigurvegarar að þessu sinni urðu liðsmenn  Rocks,Socks,Clocks and Tacos sem voru að koma hingað í fjórða skiptið til að taka þátt í Ice Cup. liðsmenn liðsins eru þau Christopher Mina, Adam Kapp, Matt Gallegos og Lorna Retting. Í öðru sæti varð lið frá USA sem nefndi sig Plastered Puffins og í þriðja sæti varð annað lið frá USA sem nefndi sig einfaldlega Team USA.   Í B úrslitum sigraði lið Ice Hunt eftir keppni við Víkinga.  Mótið fór mjög vel fram og allir sem hafa tjáð sig eftir mótið hafa lýst ánægju sinni bæði með mótið og veðrið sem lék við okkur yfir helgina. Skjal með upplýsingum og úrslitum HÉR