ICE CUP 2015

Sæl öll.  Nú er að koma að því.  Fáum svellið afhent í dag og ætlum að byrja á ísgerð strax.  Á morgun, sunnudag 26. apríl kl. 10:00, byrjar síðan vinnan við aðstöðusköpun.   Þurfum að taka til, þrífa og ganga frá ýmsum búnaði.  Auk þess þarf að stækka kaffiaðstöðuna o.fl.  

Margar hendur vinna létt verk og óþarfi að alltaf séu sömu aðilarnir sem þurfa að sjá um alla vinnuna.  Mæti margir þarf þetta ekki að taka svo langan tíma.