Hópar í heimsókn

Nokkrir hressir Eyjamenn skelltu sér á svellið um helgina og prufuðu Krullu í fyrsta skiptið.  Mörg skemmtileg tilþrif sáust og líklegt er að þetta verði ekki í eina skiptið sem þessir sjást á svellinu og strax byrjað að tala um að nú vanti svell í Vestmannaeyjum. Þökkum þeim fyrir komuna.

Þótt töluverður fjöldi hópa hafi komið til okkar í vetur, hafa fleiri þurft frá að hverfa þar sem ekki hefur fengist tími sem hentar til að prófa Krullu.  Vonandi tekst að bæta úr því á næsta ári.