Haustmót Krulludeildar 2018

Í kvöld verður leikin 3. umferð í haustmótinu.  Allir geta verið með hvort sem þeir mættu í fyrri umferðir eða ekki. Að loknum tveim umferðum eru 4 jafnir í efstu sætum, Árni Grétar, Óli, Rúnar og Sigfús. Þegar dregið verður um lið verður því stillt þannig upp að þeir geti ekki allir lent saman í liði. Leikir hefjast kl. 19:45