Gimli mótið 2016

Sl. mánudag, 1. feb. fóru fram tveir leikir í Gimli mótinu 2016.  Rest sigraði Víkinga 6-1 og Garpar lögðu Ice Hunt 6-3.  Staðan er þá þannig að Rest er með fullt hús stiga en Garpar eru næstir með eitt tap.  Víkingar og Ice Hunt eru jöfn með tvö stig en Ice Hunt raðast ofar vegna innbyrðisviðureignar. Í kvöld, miðvikudag 3. feb. fer fram frestuð viðureign Garpa og Rest og að henni lokinni eru tvær umferðir eftir.

Stöðuna í   Gimli mótinu ásamt fleiri upplýsingum má sjá með því að smella á þennan hlekk.

Í kvöld munu einnig starfsmenn Eflu koma og kynna sér Krulluíþróttina.  Leikmenn Ice Hunt og Víkinga munu sjá um að leiðbeina þeim.