Gimlimótið 2015 ekki 2016

Gimli meistararnir í Görpum
Gimli meistararnir í Görpum

Tveir síðustu leikir Gimli mótsins fóru fram sl. miðvikudag, 17. Febrúar.  Ice Hunt tryggði sér bronsið með því að leggja Víkinga, 5-4.  Hreinn úrslitaleikur var svo á milli Garpa og Rest. Restinni hefði dugað að vinna tvo enda til að standa uppi sem sigurvegarar en náðu aðeins einum og því voru það Garpar sem hirtu dolluna og eru Gimli meistarar 2015. Leikurinn endaði 10-2. Þó svo að mótið hafi verið auglýst sem Gimli mótið 2016 er það ekki rétt. Gimli-mótið 2014 færðist yfir áramótin 2014-2015 þannig að fyrir misskilning var eins og eitt ár hefði dóttið út.  Rétt er að lið Ice Hunt varð Gimli meistari 2014 og nú eru Garpar Gimli meistarar 2015.  Næsta Gimli mót verður vonandi klárað í haust þannig að náist að krýna Gimli meistara 2016 á þessu ári.

Hér má sjá lokastöðuna í mótinu.