Allt í járnum

Í gærkvöld var leikinn önnur umferð Akureyrarmótsins og allt stefnir í spennandi keppni.  Dollý tók á móti Görpum en hafði ekki erindi sem erfiði og töpuðu 1 - 5.  Í hinum leiknum mættu Ice Hunt, Víkingum en þar höfðu Víkinga betur og unnu 6 - 4.   Í þessari umferð hvíldu Stelpurnar.  Öll lið nema Ice Hunt hafa unnið einn leik en bæði Ice Hunt og Stelpurnar hafa bara leikið einn leik meðan önnur lið hafa leikið tvo.  Verði tvö lið jöfn að stigum í lok mótsins gildir fyrst innbyrðisviðureign en því næst umferðir og að lokum skor. 

3. umferð Akureyrarmótsins verður mánudaginn 10. nóvember en þá leika Garpar við Ice Hunt og Stelpurnar við Dollý.  Víkingar sitja hjá í þriðju umferð.