Akureyrarmót 2015

Mánudaginn 16. nóvember hófst seinni umferð Akureyrarmótsins 2015. Leikirnir voru mjög jafnir en Garpar lögðu Rokk, 6-5 og A lögðu Víkinga 5-4.  Í kvöld leika Rokk og A á 4. braut og Garpar leika við Víkinga á 5. braut. Rokk og Garpar leika með dökka steina og hefja upphitun.  

Staðan þegar mótið er hálfnað er þannig að Garpar haf 6 stig, Rokk og Víkingar eru öll jöfn með 4 stig en A er með 2 stig.  Stöðuna og skor má sjá hér.