Akureyrar- og bikarmót 2018

Í kvöld hefst fyrsta alvörumótið.  Ákveðið hefur verið að slá saman Akureyrar- og bikarmóti í eitt mót.  Framkvæmd verður þannig að allir leika við alla, tvær umferðir (heima og að heiman).  Þegar mótið verður hálfnað, þ.e. allir búnir að leika við alla einu sinni, verður liðið sem þá er í efsta sæti, krýnt Magga Finns Bikarmeistari 2018.  Akureyrarmeistarar verður svo það lið sem verður efst eftir tvær umferðir.  Leikir hefjast kl. 19:50 þannig að mæting er eigi síðar en 19:30.