Akureyrar- og bikarmót 2017

Síðasta umferð Akureyrar- og bikarmótsins verður leikin í kvöld.  Í 5. umferð fóru leikar þannig að Garpar sigruðu Víkinga 5-4 og Ice Hunt hafði betur gegn Freyjum 11-2.  Þá er ljóst að það verða annað hvort Garpar eða Ice Hunt sem geta orðið Akureyrarmeistarar. Garpar standa betur að vígi með 8 stig á móti 6 stigum Ice Hunt. Fari svo að Garpar tapi sínum leik og Ice Hunt vinni sinn leik ráðast úrslit á unnum endum eða skoruðum steinum.

Stöðuna má sjá hér.

Leikir kvöldsins eru Víkingar gegn Ice Hunt og Freyjur gegn Görpum.