Akureyrar- og bikarmót 2017

Nú er fjórða umferð Akureyrar- og bikarmóts lokið.  Ice Hunt er búið að tryggja sér bikarinn en allt er enn opið í keppninni um Akureyrarmeistartitilinn. Í fjórðu umferð unnu Garpar og Freyjur sína leiki og eru Garpar nú efstir.  Úrslit og stöðu má sjá hér.

Nú er krullan komin í jólafrí en næst er það Áramótamótið sem haldið verður laugardaginn 30. desember kl. 17:30.  Þeir sem hafa áhuga á geta mætt kl. 16:30 og hjálpað til við undirbúning.