Akureyrar- og bikarmót 2017

Sameiginlegt Akureyrar- og bikarmót 2017 er nú hálfnað og komið í ljós hvaða lið er bikarmeistari.  Ice Hunt tryggði sér titilinn með því að leggja Víkinga í 3. umferð.  Á sama tíma unnu Garpar Freyjur en það dugði ekki til þó liðin yrðu jöfn að stigum því Ice Hunt náði 10 endum en Garpar aðeins 9.

Mótið heldur áfram nú i kvöld og enn eiga öll lið möguleika á að krækja í Akureyrarmeistaratitilinn.

Garpar taka á móti Ice Hunt á braut 2 og Víkingar og Freyjur spila á braut 4.

Skorblað má nálgast hér.