Akureyrar- og bikarmót 2016

Leikjum annarar umferðar Akureyrar- og bikarmóts 2016, lauk þannig að Freyjur unnu IceHunt 6-3 og Garpar lögðu Víkinga 10-2.  Staðan fyrir þriðju umferð, sem sker úr um það hverjir verða bikarmeistara, er þá þannig að öll lið hafa unnið einn leik og tapað einum.  Það er ljóst, ef ekki verður jafntefli í leikjum 3. umferðar, að innbyrðisviðureign kemur til með að ráða því hver hampar titlinum.

  • Ef Víkingar vinna IceHunt verða þeir að treysta á að Freyjur leggi Garpa.
  • Ef Garpar vinna Freyjur verða þeir að treysta á að Víkingar vinni IceHunt.
  • Ef IceHunt vinna Víkinga verða þeir að treysta á að Garpar vinni Freyjur.
  • Ef Freyjur vinna Garpa verða þær að treysta á að IceHunt vinni Víkinga.
  • Svo er alltaf möguleiki á að jafntefli verði í öðrum hvorum leiknum og þá verður sigurvegari í hinum leiknum bikarmeistari 2016.

Næsta mánudag, 28. nóv. taka semsagt Garpar á móti Freyjum á 2. braut og IceHunt tekur á móti Víkingum á 4. braut.  Leikirnirhefjast kl. 19:00.

Hér má sjá nánar um úrslit og skor.