Moya vefumsjónarkerfið er hannað og smíðað af Stefnu frá upphafi og einkennist af þjónustulund og hugvitssemi starfsmanna. Um er að
ræða þægilegt en þó gríðarlega viðamikið vefumsjónarkerfi sem getur fullnægt þörfum smárra sem stærri
fyrirtækja.
Búið er að hugsa út í allar mögulegar aðstæður og aðgengi fyrir fatlaða er eins og best verður á kosið. Kerfið býður uppá hnappa til að breyta bakgrunni og stærð leturs fyrir lesblinda og sjóndapra. Einnig er Moya skrifuð þannig að skjálesarar lesa hana rétt án þess að lesa kóðann og þar með er vefurinn orðinn aðgengilegur fyrir blinda líka.
Moya 1.15
Stefna hefur gefið út nýja útgáfu af Moya vefumsjónarkerfinu. Helstu breytingarnar í þessir nýju útgáfu eru aukin áhersla á leitarvélabestun og ný stjórnun á valmyndakerfinu sem gefur meiri möguleika í stjórnun og uppsetningu veftrés. Einnig hefur kerfið verið gert ennþá einfaldara, komið nýtt myndasafn, nýr ritill og búið að bæta við tengingum við til dæmis Facebook og Twitter. Nánar »


