Minningarsjóður Magnúsar Einars Finnssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir verkefni tengdum Skautafélagi Akureyrar.
Styrkirnir eru ætlaðir félagsmönnum sem vilja með einhverjum hætti láta gott af sér leiða í þágu félagsins, s.s. er varðar þjálfun, menntun, fræðslu, keppni eða hvað eina annað er tengist félaginu í heild og félagsmönnum þess.
Umsóknir skulu sendar með tölvupósti á MEF@sasport.is og umsóknarfrestur er til 1. apríl 2012 og styrkumsóknir verða afgreiddar eigi síðar en 15. apríl 2012.
