Auglýsingar

Norđurmjólk
Stefna ehf
Bónus
Bautinn
Coka Cola

Velkomnir allir áhugasamir um íshokkí

vikingurÍshokkí er hraðasta og svalasta íþrótt í heimi.

En þrátt fyrir hraðann og svalann eru slys á iðkendum afar fátíð og t.d. bara í fót og handbolta er slíkt mun algengara en í íshokkí. Ástæðan er jú sú að í íshokkí eru hlífarnar og búningurinn í fullu samræmi við hraðann og ákafann. Hér á Akureyri er íshokkí æft og stundað alveg frá fjögurra ára aldri og upp í Oldboys, bæði af stelpum og strákum. SA eru Íslandsmeistarar bæði í kvenna og karlaflokki og hafa hampað þeim tittli lang oftast þeirra liða sem spila í deildinni.

Það þarf ekki mikinn búnað til að byrja að æfa íshokkí hér hjá okkur. Æfingar fyrir byrjendur  eru á fimmtudögum kl. 16:00 og sunnudögum kl. 12:00 en skautar og hjálmur er nóg í fyrstu skiptin og það má fá lánað á staðnum, BARA MÆTA OG PRÓFA. Hokkídeildin á líka nokkur byrjendasett sem hægt er að fá leigð til að byrja með. Hokkídeildin kemur lika til móts við nýja iðkendur þannig að Þeir sem eru að byrja í fyrsta sinn að æfa borga einungis hálft æfingagjald fyrsta tímabilið til að koma til móts við þann kostnað sem fylgir startinu. Æfingagjöldin má sjá undir tengli í valmyndinni hér til hliðar. Allar nánari upplýsingar veitir Ollý í síma 8487577 og netfang ollybj@simnet.is

100_1212_640
100_1238_640100_4184_640

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning