Auglýsingar

Gámaþjónustan
Stefna ehf
Norðurmjólk
Höldur
Coka Cola

Velkomin í Skautahöllina á Akureyri

Símanúmer Skautahallarinnar er 461-2440, gsm: 864-7464 og email: skautahollin@sasport.is

 

 

Skautahöllin opnar fyrir

 almenning miðvikudaginn

1. september.

 

Opnunartími í skautahöllinni

september til maí

 

  MIÐVIKUDAGAR  13 - 15

FIMMTUDAGAR 13 - 15

FÖSTUDAGAR 13 - 16

FÖSTUDAGSKVÖLD - SKAUTADISKÓ 19:30 - 21:30

LAUGARDAGA 13 - 17

SUNNUDAGA 13 - 17

Það er tilvalið að taka skautasvellið á leigu fyrir hópa eða félagasamtök og má nefna að tilvalið er fyrir starfsfólk fyrirtækja að bregða sér á skauta, spila íshokkí eða fara í krullu en það er íþrótt sem kemur verulega á óvart. Einnig er mjög vinsælt er að halda uppá barnaafmæli hérna í Skautahöllinni. Nánari upplýsingar um þetta og tímapantanir eru í síma 864-7464.

Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937. Félagið hefur það að markmiði að efla skautaíþróttina og hefur rekið Skautahöllina á Akureyri síðan um áramótin 1999-2000.  Í Skautahöllinni er hægt að fá leigða skauta á sanngjörnu verði og fá lánaða hjálma án endurgjalds auk þess boðið er upp á skerpingu gegn vægu gjaldi fyrir þá sem þurfa.

Nýjustu fréttir

  • Starfið hafið af miklum krafti

    Á skautum á pollinum
    Nú í haustbyrjun er starfið í Skautahöllinni komið í eðlegar skorður og starfsemnin komin á fullt jafnt hjá deildum félagsins sem og Skautahöllinni.  Æfingar félagsins hófust um mánaðamótin sem og almenningstímar.  Deildirnar hafa verið að kynna sitt starf, gengið hefur verið í skóla og bæklingum dreift.  Nýskráningar ganga vel og blikur eru á lofti um blómlegan vetur.  Mótin fara senn að hefjast hjá deildum en nú um helgina verður Asetamót hjá mfl karla í íshokkí í Reykjavík sem er helgarmót ætlað til að koma mönnum í gang fyrir veturinn.  Um aðra helgi verður innanfélagsmót fyrir A og B keppendur hér í Skautahöllinni og svo í lok mánaðarins eða 27. september hefst Akureyrarmót hjá krulludeild. Lesa meira

  • Starfið að hefjast að nýju

    Þó enn sé hásumar er farið að kólna í Skautahöllinni.  Frystivélarnar hafa verið settar í gang og munu skautadeildir félagsins hefja sitt starf næsta mánudag með skautaskólum og æfingabúðum fyrir sína iðkendur en nánari upplýsingar um þá starfsemi má finna hér á heimasíðunni.

    Æfingar hjá öllum deildum munu síðan hefjast samkvæmt æfingatöflum mánudaginn 30. ágúst og fyrst almenningstíminn verður milli kl. 13 - 15 miðvikudaginn 1. september.

    Lesa meira

  • Byrjendanámskeið í ágúst

    Byrjendanámskeið á skautum fyrir börn fædd 2006 og fyrr verður haldið dagana 9.-13. ágúst kl:17:00-18:00 í Skautahöllinni á Akureyri. Á sama tíma verður haldið byrjenda námskeið fyrir unglinga og fullorðna. Verð kr. 5.000. Skráning og nánari upplýsingar; hildajana@gmail.com

     


  • Uppgangur í kvennahokkí

    50 SA konur 2010
    Mikill uppgangur hefur verið í kvennahokkí síðustu misseri hér á Akureyri og nú er svo komið að íshokkíkonur nálgast það að vera þriðjungur af iðkendum hokkídeildar SA.  SA byrjaði með kvennalið árið 2000 og síðan þá hefur verið stöðugur vöxtur, ekki síst þó síðustu ár eftir að Sarah Smiley var ráðinn til félagsins sem þjálfari.  Lesa meira

  • Úrslit Goðamótsins

    Helga Jóhannsdóttir Akureyrarmeistari 2010. 2.sæti Birta Jóhannsdóttir 3.sæti Kolbrún Egedía Sævarsdóttir
    Góðamótið fór fram um helgina og þar var Helga Jóhannsdóttir, krýnd Akureyrarmeistari árið 2010. Önnur úrslit má finna hér. Lesa meira

  • Leikur í dag kl. 11:00

    Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
    Í dag kl. 11:00 mætast í Skautahöllinni á Akureyri, íslenska kvennalandsliðið og breska félagsliðið Slough Phantoms.  Leikurinn er liður í íshokkímótinu NIAC sem fram fer í höllinni um þessar mundir.

  • Vel heppnuðu kvennamóti lokið

    Stór kvennahópur að loknu móti. Ljósmynd Jódís Eva
    Kvennamótinu lauk á laugardagskvöldið á leik Hákarlanna og Snákanna en það var sjötti og síðasti leikur mótsins.  Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og segja má að mjög vel hafi tekist með að raða niður í lið, því öll liðin þrjú voru jöfn að styrkleika.  Leikmönnum úr öllum liðum og á öllum aldri var raðað saman í þrjár línur í hverju liði og séð var til þess að jafnar línur mættust með reglubundnum skiptingum. Lesa meira

  • Kvennamóti í Skautahöllinni á Akureyri

    Bergþóra með pökkinn og Vigdís sækir að. Ljósmynd: Jódís Eva
    Nú fer fram í Skauthöllinni á Akureyri kvennamót í íshokkí þar sem um 50 konur frá SA, SR og Birninum á öllum aldri keppa í þremur liðum.  Liðin þrjú sem sérstaklega voru sett saman fyrir þetta mót heita Svörtu snákarnir, Rauðu Tígranir og Hvítu hákarlarnir.  Hvert lið er skipað þremur línum, hver í sínum styrkleikaflokki, og þannig keppa saman línur af sama styrkleikaflokki allt mótið.  Með þessu móti næst að halda keppninni jafnri þrátt fyrir ólík getustig leikmanna. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning